svona er þetta bara

Velkomin

25.05.2007 00:14:07 / hrabba

Hætt

Jæjæ nú er ég hætt með þessa síðu og ætla ða færa mig yfir á

 

http://www.hrabbajons.bloggar.is 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 14:52:45 / hrabba

afmæli afmæli

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli hún Mamma

Hún á afmæli í dag 

Hún er 21 í dag

hún er 21 í dag

hún er 21 hún mamma

hún er 21 í dag

Hamingju með afmælið mamma mín

Kveðja ÓÐINN 

 

Það er svo gaman að eiga afmæli :) ég er búin að baka alveg fullt af kökum og bjóða fólki í kaffi í kvöld :)  Hlakka geggjað til

Páskarnir eru búnir að vera æðislegir á skírdag þá fórum við Óðinn með pabba og mömmu í Svartárkot í Bárðardal og það var aðislega gaman og svo á föstudaginn þá kom bjössi vinur gunna og kærastan hans í heimsókn og við fórum með þeim og Jónsa og Halla út að borða á Greifanum svo fórum við í partý niður til bigga og svo fór ég með Dagbjörtu og Helga í sjallann og svo á laugardaginn var ekki gert neitt nema að lyggja í leti en á páskadagur var tekin snemma og fórum við heim til mömmu og pabba um 9 og vorum þar fram að hádegi en svo var bara slappað af og spilað og svo um kvöldið buðum við pabba hans gunna í mat og ég eldaði rosa gott læri þó ég segi nú sjálf frá :)

En það er eitt sem ég skil ekki og það er afhverju er hætt að sýna skemmtilegt fjölskyldu efni á páskadag, það var bara handbolti og formúla, ekki það að það sé eitthvða leiðinlegt en maður mundi nú kannski vilja horfa á eitthvað annað eins og góðar bíómyndir. 

En endilega kvittið fyrir komunni það er svo leiðinlegt að blogga þegar enginn kvitta

kv. Hrabba afmælisbarn 


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 18:16:26 / hrabba

ætla að taka pásu með þetta blessaða blogg

jæjæ þá ætla ég bara að taka mer pásu með þetta blogg en þið sem þekkið mig getið fylgst með á heimasíðunni hans Óðins á barnalandi :)

» 7 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 22:39:45 / hrabba

Tími á blogg

Loksins er komin tími á blogg hjá mér enda er alveg hellingur búinn að gerast hjá mer síðan síðast :)
Prófin voru í byrjun des og gekk mer alveg rosalega vel í þeim, hef bara aldrei á ævi minni fengið svona góðar einkannir :) svo hætti ég í vinnunni um miðjan des, enda orðin dáltið mikil um mig :)
15 des fengum við Gunni svo íbúðina okkar, þannig að þá stóð maður bara í fluttningum :) og svo komu jólinn og ég fékk alveg helling af pökkum :) við Gunni ákváðum að vera bara hérna í kjalarsíðunni á aðfangadagskvöld og við buðum mömmu hans og pabba og systkinum hans að vera hjá okkur, þetta var bara mjög gaman, svo ætluðum við að vera heima hjá mömmu og pabba á áramótunum en það fór á allt annan og betri veg og vorum við barasta upp á sjúkrahúsi því að litli snáðinn minn tók upp á því að láta fyrir sér finna kl 7 um morgunin á gamlársdag og var hann svo fæddur kl 14:08 og var hann rúmar 12 merkur og 49 cm :) Við Gunni ákváðum að nefna litla prinsinn okkar Óðinn :) svo komum við heim með hann í gær og það var rosalaga fínt enda orðin dálítið þreitt á sjúkrahúsmat.

en læt þetta duga í bili
kveðja Hrabba



» 5 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 20:57:29 / hrabba

Bloggiblogg

Ég ætla að byrja á því að óska Röggu vinkonum með litla prinsinn sinn sem fæddist 16 nóv.:) ég get nú varla beðið eftir mínum en ég verð víst að bíða í ca. 5 vikur í viðbót, vonandi ekki mikið legur nema kannski í fram í 1 jan. því að ég er orðin eins og gömul kerling, :) hehe  get varla staðið sjálf upp úr rúminu og get ekki snúði mer þegar ég ligg nema með mesta basli og svo er stundum svo vont að labba út af grindagliðnunni en þetta er allt þess virði :) ég fór í mæðraskoðun á fimmtudaginn í seinustu viku og það kom allt mjög vel út, er reindar komin með bjúgu á hendurnar.

Það var nú lítið gert um helgina, fór aðeins til Önnu Grétu á föstudagskvöldinu eftir vinnu og svo var ég að vinna í gær og klósettin í vinnuni voru biluð þannig að ég komst ekki á klósettið í 4 tíma nema að hlaupa yfir á Glerártorg og ég nennti því ekki í þessum kulda :) þannig að pissublaðran mín var alveg útþaninn þegar ég loksins komst heim enda ekki mikið  plás fyrir hana hehe. Svo um kvöldið þá fórum við Gunni til Dagbjartar og Helga að spila póker, algjört fjör :) og svo var farið í annað spil og Dagbjört var svo tapsár greyið að það endaði með því að við vorum farnar að svindla til að ná strákunum því þeir voru svo langt á undan okkur :) hehe þetta var mjög gaman... og svo í dag þá fór ég aftur til Önnu Grétu og  við fórum svo á markað sem var haldin upp í skóla... svo er ég bara búin að hanga hérna heima að gera ekki neitt nema læra(svo dugleg :) )


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 21:58:08 / hrabba

blogg

hæhæ

Það er bara allt fínt að frétta hjá mer og bumbubúanum mínum utan við það að legið í mer vex eitthvað svo hægt en ég á að fara aftur í skoðun á næsta fimmtudag og á kemur í ljós hvort að það þurfi að skoða þetta eitthvað nánar en ljósmóðirin sagði mer að hafa ekki neinar áhyggjur því að ég væri sjálf svo smávaxin að það væri ekki alveg að marka þessa viðmiðunarlínu... En vá hvað tímin er fljótur að líða það eru ekki nema 8 vikur og fjórir dagar þangað til að ég er skráð inn :) og svo á Ragga vinkona að eiga núna í nóvember :)

en annars er svo sem ekki mikið búið að gerast hjá mer nema í vinnunni áðan þá var ég að tala við einhvern mann og honum fannst ég standa mig svo vel að hann vildi alveg endilega ráða mig í vinnu við að kynna tryggingar fyrir eitthvað tryggingafélag (man ekki hvað það heitir:|) en það er miklu betra borgað heldur en hjá gallup þannig að maður hugsar um þetta tilboð :)

en ég ætlað að fara að fá mer eitthvða að borða þannig þangað til næst bæbæ


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 20:55:29 / hrabba

Loksins

æjæj loksins nýtt blog :) Það er svo sem ekkert mikið búið að gerast hjá mer undafarið... skólinn bara og vinna í gallup.  En annars þá er bara allt gott að frétta hjá mer og bumbubúanum mínum.

En hefur einhver spáð í það að ég sé að fara að verða MAMMA!!!! finnst engum það skrítið nema mer??? en reyndar þá finnst mer ennþá skrýtnar að hugsa út í það að Gunni se að verða pabbi.. en hann á eftir að standa sig vel þessi elska :D Við fórum í foreldrafræðslu í gær og það var geggjað stuð.. ljósmóðirinn var að sýna það hvað væri að ske þegar börnin eru að fara að fæðast og hvernig fæðingin væri og hverng hún fer fram.

en hef þetta bara stutt núna.... er nefnilega að fara í bíó með Gunna mínum og Dagbjörtu og Helga.

bæbæ Hrabba


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.08.2006 12:13:11 / hrabba

blogblog

hæhæ... það er alveg rosalega langt síðan að ég hef bloggað og ég get nú reyndar ekki sagt að það hafi verið vegna þessa að ég hafði ekki tíma í það því að ég þurfti að hætta í vinnunni minni vegna grindargliðnunnar þannig að nú er ég bara að vinna á gallup þar sem ég get setið á rassinum hehe :o .og byrirja aldrei að vinna fyrr en kl 18

En svo fórum við Gunni í sónar í gær og það var geggjað stuð, fengum að sjá litlu hendurnar og fæturnar og meira að segja líffærin það var svo gaman :D og við fengum líka að vita hvaða kyn það væri og við vorum ekki komin útaf spítalanum þegar hann Gunni var búinn að segja frá því hehe :lol: en það var allt í lagi því að það er svo sem ekkert leyndarmál...

Svo í dag er ég að fara í skírnarveislu til Bibba og Írisar og svo ætlum við að fara út á Dalvík á fiskidag því að ég var búin að lofa Hjalta að keyra hann í kvöld :)

en nenni ekki að hafa þetta lengra í bili

bæbæbæ


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 14:10:30 / hrabba

hæhæ

hæhæ sorry hvað það er ógeðslega langt síðan að ég hef bloggað ég hef bara hreinlega ekki nennt því... :( en það er svosem ekkert mikið búið að gerast hjá mér (allavega ekkert sem má segja á netinu strax :) )

Já ég var svo í prófum en ég féll í helvítis enskunni :( Ekki sátt. En ég náði nú til betur fer öllu öðru sem ég er búin að fá út úr :)

Svo er allveg fullt að gerast hjá mer næstu daga :) ég er að fara suður til hennar Önnu Grétu á morgun en hún slasaði sig greyið og endaði upp á spítala í aðgerð :( þannig að ég er að fara til að hressa hana við :) og svo þegar ég kem heim þá er hann Gunni að útskrifast og svo á miðvikudaginn 24 maí þá förum við aftur suður og svo á fimmtudeginum þá förum við til Benedorm með fjölskylduni hans Gunna 8) hlakkar geggjað mikið til :) og svo þegar við komum þaðan þá förum við Gunni til Hveragerðis og gistum hjá Halla og Sissu í 4 daga og förum í 3 fermingarveislur :)

En ég hef svo sem ekki mikið annað að segja þannig að ég læt þetta bara gott heita :D
kveð að sinni
Hrabba


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 15:52:59 / hrabba

Gleðilega páska

Gleðilega páska allir landsmenn :)

jæja þá er loksins komnir páskar og ég get loksins farið að borða öll páskaeggin mín... :) já ég og gunni eigum heil 4 páskaegg sem við fengum í afmælisgjöf og svo körfu með fullt af litlum eggjum :)

Á sunnudaginn 9 apríl þá fórum við Anna Gréta út að borða og fengum okkur þessar dýrindis tortillakökur með kjúkklingi :) það var stuð ..... og svo eftir það þá vorum við að rúnta í pínustund og Anna Gréta fór að kaupa sér nammi og ég veit ekki hvað stákurinn hefur haldið um okkur því að hún var að kaupa alveg fullt að svona skrítnu nammi.. duft og alskonar svoleiðis sulli :D hehe en bara gaman af því...

En á mánudaginn 10 þá átti ég afmæli en af tilefni því þá var matur heima hjá mömmu og pabba og Anna Gréta kom líka  :) það var bara stuð og svo eftir matinn þá fórum við Gunni, Begga og Anna Gréta í bíó á date move og hún var bara snild :)

Ég hélt upp á afmælið mitt á síðasta fimmtudag og það var bara geggjað stuð :) fékk alveg fullt af pökkum :) Og Anna Gréta ég fékk svona dót til að elda kjöt á, man ekki alveg hvað það heitir en við þurfum endilega að prófa það þegar þú kemur aftur :)

Svo um helgina þá er ég bara búin að vera að vinna og gera lítið annað... kíkti reyndar aðeins í partý hjá Ásdísi á miðvikudagskvöldinu og vá hvað það var skrítið að hafa ekki Tómas þarna hlæjandi með myndavélina eins og hann var vanur :) En ég er nú að spá í að kíkja eitthvað í kvöld eftir vinnu ... kannski að maður fari í sjallan :)

hehe ég var að lesa þetta yfir og það mætti halda að Anna Gréta væri eina vinkona mín hehe 

en kveð að sinni bæbæ


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 16:43:45 / hrabba

hæhæ

hæhæ dálítið langt síðan ég skrifaði seinast:| jájá en það er svo sem ekkert búið að gerast mikið hjá mér....
En já eins og ég sagði í seinasta bloggi þá fór ég í sjallann seinustu helgi og það var geggjað stuð.. langt síðan ég hef skemmt mér svona vel :D en ég hef samt bara áhveðið að þó svo að það hafi verið svona gaman þá ætla ég bara að vera heima um þessa helgi... kíki kannski á rúntinn eða eitthvað...

Á morgun þá ætlum við Anna Gréta, Sóley og vonandi Kristlaug að fara út að borða saman... það er svo langt síðan við höfum gert eitthvað svona allar saman.. já og svo á mín bara afmæli á mánudaginn og ég verð 20 ára :D og svo á hann Gunni minn afmæli eftir viku og við ætlum að halda smá veislu fyrir vini og ættingja á fimmtudaginn næsta :) þannig að ef þið eruð vinir eða ættingjar okkar þá er ykkur boðið :) og ef ég gleymi að hringja í ykkur þá kannski sendiði mér bara sms eða eitthvað til að minna mig á ykkur :) hehe eða mætið bara :)

en ég held að ég hafi þetta ekkert lengra í bili
kveð að sinni Hrabba

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 16:36:36 / hrabba

blabla

jæjæ dálítið síðan að ég skrifaði seinast hérna :) Það hefur svo sem ekkert mikið gerst hjá mér síðan.... bara skólinn og svona. Reyndar fór ég í klippingu á fimmtudaginn og er auðvita geggjuð gella núna :D hehe..

Svo er það Egó í sjallanum í kvöld:) Ég, Gunni,Dagbjört og Helgi(held ég) ætlum að skella okkur á hann Bubba kallinn 8).. en því miður ætlar hún Sóley mín ekki :( en ég er ekki búin að gefast alveg upp.. kannski get ég reynt að fá hana til að koma :)

Verst að Hulda fór suður því hún er að missa að mikklu djammi :D hehe ég verð bara að segja henni frá þessu öllu í nát í næsta tíma :) hehe gera hana abbó og svona :)

Svo er hún Anna Greta mín að fara að koma norður og verður næstum í allan apríl get ekki beðið :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 11:59:11 / hrabba

Reykjavíkurferð

jæjæ loksins annað blog..8) Haldiði að mer hafi ekki bara dottið í hug á mánudaginn að skella mér í borgina í vonda veðrinu... Mamma mín og systir hennar voru að fara suður og ég skellti mer bara með og ég get sagt ykkur það að þetta var hræðilegt það var svo vont veður á leiðinni að við vorum 6 tíma í Borganes en þá kom bara þetta fína veður og við brunuðum til Reykjavíkur og ég fór svo til hennar Önnu Grétu og gisti hjá henni í eina nótt og í gær þá fórum við í kringluna og vá hvað er mikið að flottum fötum þar.....:D en eftir þessa indislegu kringluferð þá keyrðum við Önnu heim og ég fór í Hveragerði :) þar hitti ég Hlyn frænda (Hann er að vinna hjá Mássa frænda) og við kíktum á þennan fræga Hveragerðisrúnt :D hehe og svo er ég að fara heim til hans Gunna míns í kvöld en þar sem mamma og Gunna frænka treysta sér ekki til að keyra til baka strax út af vonda veðrinu þá fæ ég far með bróður mínum en hann er að keyra flutniga bíl hjá FMN.

en þar sem ég hef ekkert meira að segja þá verður þetta miður ekki lengra í bili :)

bæbæ


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 12:23:26 / hrabba

Loksins komin með blogg

Jæja þá er maður loksins komin með blog eftir mikið tuð í minni ástkæru vinkonu önnu gretu sem vildi endilega að ég prófaði þetta :lol: heh..

Ég ætlað að byrja á því að segja frá því að hún Sara mín datt út úr idolinu í gær :( en hún er alveg sátt með það og er ánægð með sína frammistöðu þarna í idolinu.. þannig að það er nú gott.. en hún Sara verður nú samt alltaf aðal idolið mitt :)

en hef þetta ekki lengra í bili en enda þetta á nokkrum spurnigum..
bæbæ

Nafn mitt?
Hvar kynntumst við?
Hvað er miðnafnið mitt?
Hefuru hitt mig?
Hvernig þekkiru mig eða hvernig veistu hver ég er?
 Hversu lengi hefurðu þekkt mig?
 Hversu vel þekkiru mig?
 Reyki ég?
Trúi ég á Guð?
Hvað hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig?
Aldur minn?
Afmælisdagur?
 Háralitur?
 Augnlitur?
 Á ég systkyni?
Hefuru nokkru sinni öfundað mig?
 Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?
Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig?
Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á?
Hver er minn besti eiginleiki?
Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn?
 Er ég fyndin/nn?
Er ég uppreisnarseggur eða fylgi ég öllum reglum?
 Hef ég einhveja sérstaka hæfileika?
Spila ég á e-ð hljóðfæri?
Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað mundi það þá vera?
Höfum við kysst?
 Hvað heldurðu að verði um mig framtíðinni?
 Heldurðu að ég eigi eftir að giftast?
 Hvernig manni/konu heldurðu að ég eigi eftir að giftast?
Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman?
Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni?
 Hvaða vin held ég mest uppá?
Hef ég hjálpað þér?
 Hefur þú hjálpað mér?
Þykir þér vænt um mig?
Er ég sannur vinur?
 Elskarru mig?
Langar þig að faðma mig?
 Langar þér að kyssa mig?
 Langar þér að byrja með mér?

 

» 8 hafa sagt sína skoðun


Litlar sætar krúsídúllur